A Guide to Love Matters II. for Young Girls — Jónína Sigríður Jónsdóttir
fyrir ungar stúlkur, by Jónína Sigríður Jónsdóttir. You may copy it, give it away or re-use it under the terms of the Project Gutenberg License included with this eBook or online at www.gutenberg.org . If you are not located in the United States, you will have to check the laws of the country where you are located before using this eBook. Title : Leiðarvísir í ástamálum Author : Jónína Sigríður Jónsdóttir Release date : September 15, 2005 [eBook #16696] Most recently updated: December 12, 2020 Language : Icelandic Other information and formats : www.gutenberg.org/ebooks/16696 Credits : Produced by Jóhannes Birgir Jensson *** START OF FYRIR UNGAR STÚLKUR REYKJAVÍK BÓKAFÉLAGIÐ NÝJA 1922 FÉLAGSPRENTSMIÐJAN Hvað er það, sem gerir konur yndislegar í augum karlmanna? Eg er sannfærð um, að engin sú kona er til og hefir aldrei verið til, sem eigi hefir lagt fyrir sjálfa sig þessu líka spurningu einhvern tíma á æfinni, og þá helst meðan æskan og fegurðin voru í blóma sínum; þegar lífið brosti við og vonirnar voru sem bjartastar og himinháu skýjaborgirnar enn ófallnar, þá hefir þessi spurning komið fram í hugum allra kvenna og hver hefir reynt að svara henni eftir bestu vitund--með framkomu sinni. Það er tilgangur minn með þessum bæklingi, að reyna að benda ungum og gömlum kynsystrum mínum á ýmislegt það, er verða mætti þeim til leiðbeiningar í umgengni og samlífi við karlmenn, og einkum hvernig þær eiga að hegða sér og haga til þess að verða yndislegar í þeirra augum. Vitanlega verður þessi tilraun mín afar ófullkomin, enda eigi á hvers manns valdi að rita stóra bók um þessi efni, en á það er einnig að líta, að verðmæti bóka fer eigi eftir blaðsíðufjölda og orðamergð þeirra, heldur eftir hinu, hvort bókin ber á borð fyrir þjóðina heilnæmar og siðbætandi kenningar, hvort heldur eru um landbúnað eða ástamál. Að svo mæltu sný eg mér að efninu og bið þig að fylgjast með mér og veita þeim bendingum athygli, sem eg vil gefa þér, til þess að þú getir orðið yndisleg í augum karlmanna, einkum þó unnusta þíns eða eiginmanns. Já, hvað er það, sem gerir konur yndislegar í augum karlmanna? Það eru eigi fötin, hatturinn, skórnir eða fingurgullin. Og það er heldur eigi fegurðin ein. Gyðju-fríð kona getur verið svo köld á svipinn--svo albrynjuð stærilæti og stolti--að fegurð hennar hrífur engan karlmann. Það sem gerir konuna yndislegasta í augum karlmanna er blíða hennar og yndisþokki, háttprýði hennar í allri framkomu, bros hennar, augnatillit og málrómur, fótatak og allar hreyfingar, ást hennar og næmur skilningur á öllu því göfgasta í tilverunni, fórnfýsi hennar og sjálfsafneitun, sem glöggast kemur fram hjá mæðrum við börn þeirra. Alt þetta myndar einskonar geislabaug, er sumar konur bera svo sýnilega með sér og hefir göfgandi en um leið töfra-mikil áhrif á karlmennina, vermir hjörtu þeirra og opnar þeim nýja heima og nýtt útsýni yfir lönd ástarinnar. Sumar konur virðast fæddar með þeirri hamingju að vera pilta-gull, en eigi eru þær að fremur meiri mannkostum búnar en hinar, enda eru þess mörg dæmi, að bestu kvenkostirnir sitja auðum höndum á akri ástarinnar og fá eigi að hafst--af ýmsum ástæðum. Röddin. Rödd þín og orðaval á mikinn þátt í því, hvort þú ert yndisleg í augum karlmanna eða ekki. Þess vegna er þér áríðandi að temja vel rödd þína og vanda vel orðbragð þitt. Mild og hljómfögur rödd, samfara ástríkum og fallegum orðum, bræðir klaka hinnar köldustu sálar. Temdu þér mildan og blíðan málróm, en því fegurri sem málrómurinn er, því vandaðra verður orðbragð þitt að vera. Falleg rödd og ljót orð eiga ekki saman. Mér finst ástæða til að vara þig sérstaklega við orðskrípum eins og þessum: hvað hann sé „sætur“, „pen“, „lekker“; þetta eða hitt sé „vemmilegt“, „kedelegt“, „svart“, „brogað“; hvað „fríseringin sé óklæðileg“; hvað þ essi kjóll sé „himneskur“ og að hrópa „almáttugur“ í annari hverri setningu. Augun. Hið þögla mál augnanna er öllum elskendum dýrmætara en nokkur orð og í einu augnatilliti getur falist meira en orð fá lýst, hvort sem það er ást, hatur eða fyrirlitning. Það er oft hægt að kynnast manni betur á einu augnabliki, með því að líta í augu hans, heldur en með langri samveru. Í augunum speglast sálin og ef augnaráðið er kæruleysislegt og flöktandi, má ganga að því vísu, að það óstöðuglyndi eigi sér rætur í sál mannsins. Sama gildir auðvitað um konur. Þú skalt varast að nota augu þín mikið til þess að hafa áhrif á þá, sem þú þekkir eigi. Augna-daður er ljótt og ósiðsemis-einkenni. Líttu altaf djarflega og með hreinskilni í augu annara og vertu eigi feimin né undirleit, því að þú hefir engu að bera kinnroða fyrir, ef þú kemur fram með siðprýði. Á götum úti skalt þú líta djarflega framan í karlmenn en þú mátt eigi brosa framan í þá (ef þú þekkir þá eigi) né líta um öxl til að horfa á eftir þeim. Brosið er eigi ver til þess fallið að túlka tilfinningar hjartans heldur en augnaráðið, og einlægt bros er jafnan áhrifamikið og getur svalað þystri sál og fullnægt þrá hennar. Það er hægt að brosa á ýmsa vegu: lymskulega, glettnislega, biturlega, kuldalega og blíðlega. Af því sérðu, að brosið er þeirri konu „voldugt vopn í hendi“, sem með það kann að fara, og er undir mörgum kringumstæðum lykill að hjarta karlmannsins.--En það er eins með brosið og augnaráðið, að of mikið má af því gera að brosa, og síbrosandi kona er þreytandi. Þú mátt heldur ekki brosa eða hlæja að öllu, alvarlegu jafnt sem skemtilegu, og eigi máttu brosa framan í hvern mann, sem verður á vegi þínum, og umfram alt forðast hið reykvíkska veiðibros , sem algengt er á vorum dögum. Handtakið hefir mikla þýðingu og getur borið mikinn ávöxt. Því er haldið fram, að manninn megi mikið þekkja af handtaki hans. Sumir taka svo laust í hönd þess, sem þeir heilsa eða kveðja, að líkast er sem þeir séu hræddir við að snerta hana. Slíkt handtak ber ekki vott um, að mikill innileikur sé að baki. Ef þú vilt láta karlmann finna ylinn frá hjarta þínu, þá skaltu þrýsta hönd hans hlýlega og til þess að gera handtakið enn áhrifameira, líta í augu hans um l